03.11.2014 19:08

Hádegisfyrirlestur 5. nóv - leiðir að árangursríkum foreldrasamskiptum

 

Miðvikudaginn 5. nóvember verður opinn hádegisfundur í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst hann kl.12:10. Þar mun Margrét Sigmarsdóttir upppeldissálfræðingur fjalla um erfið foreldrasamskipti og leiðir til að gera samskiptin árangursríkari.
 
Farið verður yfir gagnlegar aðferðir í virkum samskiptum, lausnaleit og tilfinningastjórnun. Sjónarhorn þjálfarans verður í brennidepli.
 
Þátttakan er ókeypis og öllum heimil. Skráning fer fram á [email protected]
 
Að lokinni framsögu mun verða opið fyrir spurningar úr sal. 
Hægt verður að fylgjast með fyrirlestrinum á netinu með því að smella á tengilinn hér:
 
 
Kær kveðja
Þórarinn Alvar Þórarinsson
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
 

 

Flettingar í dag: 460
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 2443
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 597104
Samtals gestir: 63011
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:46:14