
Aðsent
Reiðveganefnd Sprett hefur verið að vinna að því að setja upp reiðvegaskilti á athafnasvæði Spretts, um er að ræða 18 vegpresta með samtals 48 vegvísum, einnig verða allir áningastaðir merktir. Búið að að setja upp vegpresta á Kjóavöllum, Vatnsendaheiði, við Elliðavatn, Smalaholt og við Bugðu, samtals 13. vegprestar. Það sem eftir er verður klárað á þriðjudag 2 sept. n.k. en það er með Flóttamannavegi og í Hjalladal samtals 5. vegprestar.
Kveðjur
Halldór Halldórsson
reiðveganefnd