24.01.2017 20:37

Aðsent

Í tengslum við WOW Reykjavik International Games 2017 standa Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir tveimur ráðstefnum um íþróttatengd málefni í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Sex erlendir fyrirlesarar munu flytja áhugaverð erindi á ensku.
 
Fyrri ráðstefnan verður 26.janúar kl.17:30-20:30 og ber hún yfirskriftina Lyfjamál í íþróttum. Fjallað verður um hvað íþróttafólk þarf að hafa í huga þegar það neytir fæðubótarefna, þekktur hjólreiðamaður segir frá reynslunni við að falla á lyfjaprófi og rannsóknarblaðamaðurinn sem kom upp um lyfjasvindl Rússa flytur áhugavert erindi.
 
Seinni ráðstefnan fjallar um góða stjórnunarhætti og fer fram 2.febrúar kl.17:30-20:30. Þar munu þrír reyndir stjórnendur úr íþróttahreyfingunni sem koma frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Danmörku flytja fræðandi erindi um sína stjórnunarhætti. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa gert miklar breytingar á skipulagi sinna íþróttasambanda og náð mjög góðum árangri í kjölfarið.
 
Verðið á hvora ráðstefnu er 4.900 krónur og er kvöldverður innifalinn. Ef báðar ráðstefnur eru keyptar í einu er verðið 8.900 krónur og fylgir þá með 3.000 króna gjafabréf sem gildir sem greiðsla uppí WOW Northern Lights Run. Hér á heimasíðu leikanna má finna nánari upplýsingar og þar er einnig hægt að skrá sig: http://rig.is/index.php/radstefna. Skráning verður opin þangað til daginn fyrir hvora ráðstefnu nema uppselt verði fyrir þann tíma.
 
Hvetjum ykkur til að kynna ykkur þetta og senda upplýsingar áfram á iðkendur, þjálfara og stjórnarfólk eftir því sem við á eða deila viðburðunum á Facebook síður ykkar.
 

Með kveðju / Best regards
Landssamband Hestamannafélaga | Landsmót
The Icelandic Equestrian Association | Landsmót

www.lhhestar.is | www.landsmot.is  

Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 754
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 453043
Samtals gestir: 46095
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 06:25:32